Ms. Linda Ingadóttir

G' day mate

01.09.2007 01:22:47 / Linda

Vangaveltur!!

 

Ég var svo heppin í sumar að vinna með eina yndislega 2 ára selpu sem að ég er farin að sakna alveg rosalega mikið. Hún er fjölfötluð og getur hvorki labbað né talað EN er ein sú brosmildasta og kátasta stelpa sem ég veit um. Hún hefur átt erfiða barnæsku og verið mikið veik en alltaf er stutt í brosið hjá litla englinum. Í raun er hún heilbrigð til eins árs aldur .... 
Það er alveg ótrúlegt hvað maður getur orðið háður þessum litlu manneskjum og þó að hún sé ekki eldri en 2 ára þá hefur hún kennt mér svo ótrúlega margt...

 

Haið það nú gott börnin góð  
Linda 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 12:27:42 / Linda

Rvk-Skövde-Rvk-Skövde!!!

Hej! 

Sumarið er að enda komið og ég hef ekki gert neitt annað en að vinna! Ekki svo skemmtilegt .. en það styttist óðum í það að ég flytji suður og get ég eiginlega ekki beðið þar sem að ALLIR eru fyrir sunnann og þeir fáu sem að voru hérna á Ak í sumar eru á leiðinni suður þessa dagana ! Skólinn í Skövde byrjar á mánudaginn og er það eitthvað sem að tosar mig þangað ... núna velti ég mikið fyrir mér hvort að ég hafi gert mistök með því að ákveða að fara suður!! Julia og Elin eru alltaf að reyna að fá mig til Svíþjóðar .. ég er náttúrulega að kasta einu ári í burtu ! En eins og staðan er í dag þá er það Rvk í haust EN ég get samt alltaf farið til Skövde .. Guð hvað þetta er allt saman flókið !
 
En það skemmtilega sem er framundan hjá mér er að ég, mamma, Dagný systir, Stefanía systir og Elín erum að hugsa um að skella okkur í helgarferð til Skotlands í haust! Það er ekkert ákveðið en það væri nú samt gaman að gera eitthvað svoleiðis þegar skólinn verður komin á fullt...
 
Það kemur meira síðar ..
Linda 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 15:29:53 / Linda

Um allt og ekkert ..

Góðan og blessaðan daginn ...

Ég ætla bara svona rétt að rita örlítið hérna niður. Ég er náttúrulega löngu komin heim og farin að vinna eins og brjálæðingur á skammtímavistun ...  ég verð hérna á akureyri út sumarið og fer svo suður í haust, skólinn byrjar svo 3. september. 

Það er svosem ekki mikið að frétta, ég fór til Kaupmannahafnar áður en ég kom hingað og heimsótti Guðnýju sem að var alveg yndislegt og við skemmtum okkur konunglega saman :D Svo hittist gamli G-bekkurinn úr MA 16. júní, þetta var snilldarpartý og ég hef sjaldan skemmt mér svona vel. Hlakka til að hitta ykkur aftur og ég vona bara að það verði að ári :!: um síðustu helgi skelltum ég og Lilý okkur í mývatnssveitina  og í jarðböðin, síðan brunuðum við í Vaglaskóg og tjölduðum. Síðan var bara grillað, drukkið, hlegið og spilað :) þetta var yndisleg ferð og gott að komast aðeins frá Akureyri. Þessa helgi verð ég svo bara að vinna en helgina þar á eftir verður ferðinni heitið til Siglufjarðar og hitta alla ættingjana. Brynhildur og co eru líka á leiðinni í fallega fjörðinn :D 

jæja eg verð að hætta nuna, aðeins 20 mínútur þangað til að ég á að vera mætt í vinnu og hjólið bíður eftir mér! 

Mvh
Linda


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 21:29:32 / Linda

Atburðir helgarinnar ..

 

Jæja gott fólk núna eru 2 vikur í það að ég flytji heim 8| Djöfull er tíminn fljótur að líða...

Helgin er búin að vera með eindæmum góð. Ég, Julia, Ingibjörg og Evelina skelltum okkur á kaffihús á föstudagskvöldið og hittum Oscar og vini hans og sátum þar frameftir kvöldi. Umræðurnar snérust aðallega um það að kenna strákunum nokkur vel valin orð á íslensku ;) Alltaf jafn gaman .. haha

Laugardagurinn innihélt svo ræktina, bæjarferð og fl. Um kvöldið var svo kinky kvöld á kåren og var búin að vera mikil tilhlökkun í stelpunum úr bekknum, nokkrar þeirra voru búnar að hafa mikið fyrir því að versla sér flotta búninga í tilefni kvöldsins. Ég er svo mikil skræfa og ákvað að gefa skít í kinky búninga og vera bara ég sjálf þrátt fyrir margar tilraunir frá stelpunum um að troða mér í eitthvað kinky! Susanna vildi endilega að ég færi í búning og lánaði mér fangelsisbúning, ég bjóst nú bara við svona röndóttum bol og buxum, ÓNEI! svoleiðis var það nú ekki ... heldur blasti við mér pínulitlar (og þá meina ég pínulitlar) stuttbuxur og "bolur" sem huldi bara brjóstin 8| auðvitað svona röndótt og já svo má ekki gleyma litlum hatti og leðuról sem átti að vera um hálsin ... ég missti andlitið þegar ég sá konuna á myndinni í gallanum :!: Ég hélt nú ekki .. en auðvitað hló ég mig máttlausa og mátaði þetta og hló ennþá meira! Aldrei í lífinu myndi ég láta sjá mig í þessu .. Julia reyndi líka að koma mér í korsett. Hún vildi endilega að ég myndi máta og jésus kristur hvað það er mikið mál að koma sér í þetta!! Hún var svona 10 mín að strekkja böndin á bakinu og því meira sem hún strekkti því minna gat ég andað .. hvernig gátu konurnar í gamla daga verið í þessu !!! En ekkert af þessu virkaði og ég endaði bara í gallabuxum og bol, klassískt :)
Við skelltum okkur svo sex stelpur í partý til Gustav og þar blasti við okkur full íbúð að strákum, ekki verra ;) og þar helltum við í okkur áfengi þangað til að klukkan sló 11 og stelpurnar vildu drífa sig á Kåren til að sýna búninga sem að þær voru búnar að hafa svo mikið fyrir að finna! Kåren var bara helvíti skemmtilegur í þetta skipti og Linus passaði mikið upp á það að ég fengi nóg af drekka af barnum .. haha bara gaman af því. En þetta var vel heppnað kvöld og ég skemmti mér ógeðslega vel, tack så mycket tjejer ;)

Dagurinn í dag er aftur á móti búin að vera frekar erfiður og mikið um þynnku ... Við í bekknum vorum búin að ákveða að hafa picnic í parken um 2 leytið og ég drattaðist á lappir og lét sjá mig! Og það sást greinilega á mér að hafi verið þunn því að það spurði hver einn og einasti maður á svæðinu hvort að ég hefði verið að drekka í gær haha .. það voru samt fleiri en ég svona :) Þetta var bara helvíti næs, við lágum þarna svona 15 saman og við sem höfðum farið út rifjuðum upp atburði kvöldsins ..

En út í allt annað, skólinn er alveg að verða búin og ég er að leggja lokahönd á stórt verkefni og svo er það bara eitt heimapróf og svo er ég BÚIN... og þá get ég sagt með stolti að ég sé búin með eitt ár í Félagssálfræði í Högskólanum í Skövde :D (mín er bara búin að ná öllu!) Gud vad skönt! Ég held barasta að ég eigi eftir að sakna Skövde! Núna undanfarið hefur allt gengið svo vel og ég er búin að vera mikið með stelpunum úr bekknum, sérstaklega Juliu og Susanna. Týpiskt að þetta sé allt að smella saman núna og ég er að flytja heim ... EN ég ákvað að gera eitt sem flestir kannski bjuggust ekki við .. en ég er ennþá skráð í skólann og get komið aftur að hausti eða vori ef ég vil :$ Ég talaði við námsráðgjafa í vikunni og hún ætlar að halda mínu plássi fram á næsta ár þannig að ég get komið hvenær sem er!! En þetta er bara svona ef að Rvk gengur ekki upp (sem að eru ekki miklar líkur!) :)

Jamm jamm svona er nú það ... ég ætla að fara að henda mér í rúmið því að ég og Julia ætlum að taka Power Walk klukkan 7 í fyrramálið áður en við förum í skólann :) við erum búnar að vera svo duglegar núna undanfarið! Ég býð ykkur bara góða nótt og þangað til næst .. hejdå

MVH
Linda

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 08:31:36 / Linda

Úfff langt blogg!

Góðan og blessaðan daginn ..

Núna sit ég við tölvuna við mína daglegu iðju en það er að borða hafragraut með kotasælu, mjólk og smá kanilsykri (gervisykur og kanill ;) haha) Og datt mér þá í hug að rita hér niður nokkur orð.. og verða þau kannski í fleiri kantinum í þetta skipti vegna mikils bloggleysis núna undanfarið! Ég segi nú bara hvar á ég að byrja??

Ok, Áslaug kom til mín frá Noregi þan 27. apríl og var hérna í 5 daga. Það var yndislegt að hafa hana hérna og við skemmtum okkur alveg konunglega :) Dagskráin var þéttskipuð og stóð frá fimmtduegi til mánudags, ég ætla á stikla á stóru:

Fimmtudagur: Áslaug kom seinnipartinn og við skelltum okkur samstundis í bæinn með Juliu að fika, enda var veðrið með eindæmum gott. Óli hringdi svo um 7 til þess að athuga hvort að við nenntum ekki með þeim strákum (Óla, Ella og Axel) í bíó klukkan 9 á 300 og auðvitað skelltum við okkur ... eftir bíóið voru strákarnir frekar þyrstir eftir allt poppátið og kom þá bjór fyrst upp í huga þeirra! Þar með var komið við á Harrys og hófst bjórdrykkjan (Ég var bara edrú og auðvitað Áslaug líka þar sem að hún drekkur ekki) .. áður en ég vissi af voru Tekíla skotin farin að renna ljúft niður hjá þeim og vodka í Redd Bull komið á borðið, þetta þýddi bara eitt: FYLLERÍ! strákarnir voru orðnir frekar æstir og vildu fara á Bogrens þar sem að það var óvenju mikið af fólki í bænum miðað við fimmtudag. En þegar við ætluðum að reyna að komast inn var búið að loka fyrir inngöngu vegna of mikils fólks þar inni 8| hmmmm.. skrýtið! Ég fór síðan að líta í kringum og fannst fólkið vera frekar unglegt að sjá en strákarnir vildu ekkert hlusta á mig og hugsuðu bara um það að reyna að komast inn til að reyna við allar þessar sætu stelpur !! Við komumst siðan að því daginn eftir að það var djamm hjá gymnasiuelever en það er fólk á aldrinum 16-18 ára (held ég!) .. haha flott strákar! ;) Þeir gáfust samt ekki upp heldur fórum við öll á Voda og sátum þar og spjölluðum til að verða eitt. Þetta var alveg hið ágætasta kvöld :)

Föstudagur: Auðvitað sváfum við stöllur út, skelltum okkur svo i bæinn um hádegisbil að versla og fika á Rådhustorget! Ingibjörg kom líka og var með okkur .. Sólin var hátt á lofti þennan dag og ekki ský að sjá, enda komum við ekki heim fyrr en um sexleytið, bara svona til þess að sleikja sólina sem mest! Elduðum kvöldmat, tókum okkur til og vorum mættar til Alinu um 9 leytið. Þar sátu ég, Áslaug, Julia, Alina, Anna og Sanya út á svölum til að verða 12 en þá var ferðinni heitið á Vatra. Ég var edrú í þetta skipti líka og frekar þreytt þannig að ég og Áslaug fórum frekar snemma heim ... en samt mjög gott kvöld og við skemmtum okkur konunglega í stelpupartýinu!

Laugardagur: Sváfum fram að hádegi og vöknuðum við að sólin var orðin ansi sterk og við svoleiðis að deyja úr hita ... þannig að það var ekki annað hægt en að skella sér bara strax í bæinn! þennan dag versluðum við aðeins meira og fik-uðum aðeins meira ;) haha
Um níu-leytið fórum við til Óla í partý, flestir þar voru íslendingar en auðvitað komu nokkrir Svíar líka :haha: Kvöldið endaði svo með ferð i bæinn en því miður komust ekki allir með sökum ölvunar :lol: ég nefni engin nöfn!! haha En ferðinni var heitið á Voda og svo Krikelin sem er frekar ógeðslegur staður, en og Julia náðum samt að gera gott úr þessu og dönsuðum í alveg dágóðan tíma við misjöfnu fólk!! ;)

Sunnudagur: Þynnkudagur hjá mér sem stóð aðallega af því að liggja í rúminu allan daginn og horfa á eitthvað skemmtilegt! Áslaug stóð auðvitað með mér í því og tók bara líka "þynnkudag" á þetta ...

Mánudagur: Valborg, en það er hátið hérna hjá Svíum sem samanstendur af því að drekka sem mest og vera sem mest fullur (allavegana skil ég það þannig ;) ) Ég og Áslaug byrjuðum daginn á því að fara í bæinn og á Voda og fá okkur salat, það er svo geggjað góður matur þarna.... og auðvitað náði ég að kikja inn í eina búð og koma út með poka :$ ég er alveg ótrúleg stundum! Komum svo hingað heim um 4 leytið og bökuðum skonsur og kom allt gengið í heimsókn (Óli, Elli, Axel, Ingibjörg og Birkir) ... Ég og Áslaug sýndum gífurlega hæfileika okkar í eldhúsinu og slógu skonsurnar í gegn :D Eftir mikið át fóru svo allir heim til að taka sig fyrir kvöldið sem samanstóð af partý og drykkju...

Við skelltum okkur í partý til Ella um níuleytið þar sem allir íslendingarnir voru samankomnir plús nokkrir Svíar. Ég ákvað að vera ekki edrú þetta kvöld og tók það svolítið bókstaflega ;) haha. Síðan var ferðinni heitið á Bogrens þar sem að við dönsuðum af okkur rassinn ... gott kvöld sem endaði síðan á einni pizzusneið og kók.

Þriðjudagurinn: Áslaug fór heim í hádeginu og ég lá heima þar sem eftir var dagsins í mikilli þynnku ...

Þessi helgi var bara alveg brilliant og ég hugsaði ekki einu sinni um lærdóm enda er ég ennþá að vinna þetta upp! ;) en sko sannarlega þess virði ..

Síðasta helgi var bara tekin með ró! Ég og Julia fórum samt út á laugardaginn en drukkum bara Cola light og Red Bull (án vodka og án sykurs!) þrátt fyrir mikinn þrýsting frá samnemendum okkar að fá okkur nú í glas ... fórum síðan á Bogrens sem var frekar skrýtið en eg hef alltaf verið ölvuð þar inni og var ekki alveg að ná að fíla mig .. en ég gaf bara skít í það og dansaði þarna í einhvern tíma með Juliu ;) við fórum svo heim hálftíma fyrir lokun.

Ég fór síðan til Gautaborgar að hitta pabba á sunnudaginn var en hann er þar á einhverri ráðstefnu fram á föstudag. við röltum bara aðeins um Gautaborg, fórum í Nordstan og kíkja í búðir (eða ég kíkti í búðir á meðan pabbi beið eftir mér), kaffihús og svo út að borða. Svo tók ég bara lestina aftur til Skövde um 7 leytið :)

Í gær fóru ég, Óli og Elli til Jönköping til þess að kjósa en við þurftum að fara þangað til þess og hitta ræðismann svo allt yrði nú gert samkvæmt ströngustu reglum! Möllerinn var svo búin að lofa okkur hraðsendingu heim ef að við myndum kjósa rétt ;) sem að ég auðvitað gerði haha ! Ræðismaðurinn var staðsettur í háskólanum i Jönköping þannig að við fengum að sjá annan háskóla og langaði okkur öllum bara að gefa skít i Skövde og flytja þangað því að skólinn var ekkert smá flottur. Ræðismaðurinn var hinn fínasti kall og hafði mikinn áhuga á okkar ástkæra landi, sonur hans hafði búið þar í einhver ár og svo kunni hann eitthvað örlítið í íslensku. Hann var þarna eitthvað að reyna að babbla við okkur á íslensku og við brostum bara öll og skildum svona, ja kannski annaðvert orð! Við löbbuðu svo aðeins í miðbæ Jönköping, fengum okkur að borða og tókum svo lestina heim.

úff hvað þetta er orðið langt hjá mér .. svona í blálokin þá ætla ég nú að minnast á það hversu dugleg ég er búin að vera, bæði í síðustu og svo þessari viku! En ég og Julia erum búnar að vakna um 7 leytið núna undanfarið og fara út að labba í ca. 45 mín svokallað powerwalk áður en við förum í skólann! Þótt að það sé helvíti erfitt að vakna á morgnana þá er þetta mjög frískandi og ennþá betra að mæta í skólann og vita að mar sé búinn að æfa :)

Lengra verður þetta ekki í bili, ég lofa að hafa ekki svona langt á milli færslna næst og kannski henda inn nokrum myndum við tækifæri en fólk hefur verið að kvarta eitthvað við myndalysi!

Mvh
Linda

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 20:00:55 / Linda

Kanon!

Hej

það er svo mikið að gera að ég hef ekki tíma til þess að blogga !!!!! Eða ég hef ekki tíma af því að ÉG ER ALLTAF ÚTI Í GÓÐA VEÐRINU og nenni ekki að hanga inni í tölvunni 8)

Núna er ferðinnni heitið í Parken að grilla með Alinu og Juliu, klukkan er reyndar orðin 10 en það bara skiptir engu máli því að mælirinn sýnir 16 gráður, skönt :D .. Við erum að grilla svona seint útaf því að við fórum í ræktina með Juliu (hún er að vinna þar) og enduðum á því að fara í tvo tíma því að kennarinn sem átti að vera með pass klukkan 8:30 komst ekki og Julia kenndi hann bara líka og auðvitað endaði ég á því að harka þreytuna af mér og halda áfram .. :)

já svo er ég komin í myspace heiminn sem er að taka endalust mikinn tíma frá mér .. ég er alveg sokkin í þetta núna .. tékk it át myspace.com/lindahi

Härligt ... har det så bra

Mvh
Linda i sol och sommar 8)

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 22:22:48 / Linda

Þvottadagur !

 

Hej allihopa !

Ég mæli ekki með bókun á þvottatíma á milli 10 og 1! Eg er núna alveg að leka niður úr þreytu en get bara ekki hent mér í rúmið vegna þess að þurrkarinn er ekki búinn :$ .. þetta er alveg rosalegt kerfi hérna ! Ég er með svona tölvukubb einhverskonar sem að ég þarf að nota til þess að panta mér þvottatíma og til þess að komast inn í þvottaherbergið. Ég var svo að lesa niðri áðan að ég fæ bara afnot af herberginu á þeim tíma sem að ég er með pantað og ef að ég fer eitthvað yfir þann tíma þá bara So Sorry þvotturinn læstur inni! skemmtilegar upplýsingar ekki satt .. ;)
 
Mér finnst ekkert smá gott að vera komin hingað á Kurorten og ég mæli miklu frekar með þessum stað heldur Bataljonen þar sem að ég bjó áður! Reyndar er íbúðin mín frekar tómleg þar sem að ég vil eiginlega ekki kaupa mér neitt nýtt hingað inn því að það syttist óðum í það að ég flytji heim :D OG svalirnar eru að gera góða hluti þessa dagana ... Eini gallinn við þennan stað er að lestarstöðin er hérna við hliðiná en ég er alveg hægt að heyra í þessum lestum, stundum finn ég bara smá hristing :)
 
Ég skrapp aðeins til Julíu áðan, en hún býr í húsi nr.2 (ég er í nr.6) á milli þess sem að ég stakk í þvottavél og við komumst að þeirri niðurstöðu að nú væri tími til kominn að taka sér smá pásu frá drykkjunni! Við erum báðar búnar að vera frekar öflugar í þessum geira og núna segjum við STOPP ! Ég hef reyndar verið með svona yfirlýsingar áður og ekki tekist að standa við þær en núna erum við tvær í þessu og þess vegna gæti það verið auðveldara .. ég tala eins og áfengi sé besti vinur minn !!
Jæja núna ætti þurrkarinn að vera búinn og ég ætla að drífa mig niður og tékka á þessu ..
Mvh
Linda

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 10:38:14 / Linda

Í sól og sumaryl ...

 

Já það má svo sannarlega segja að vorið/sumarið sé komið hérna, ég er að líta á mælirinn á svölunum hjá mér og hann sýnir 19,2 gráður ekki amarlegt ha? Og þetta á að vera svona alla helgina, jafnvel heitara!

Lilý er í heimsókn, bara yndislegt að hafa hana hérna .. og við erum á leiðinni i bæinn ásamt Juliu och fika lite 8)

Það verður grillað um helgina í sumarblíðunni, þarf ég að segja eitthvað meira?

 

Mvh
Linda


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 12:59:15 / Linda

Vor í lofti ..

 

Það er svo ánægjulegt að fá sólina og kveðja þessa myrku daga sem hafa verið tíðir gestir hérna á undanförnum mánuðum .. Mér hlýnar bara um hjartarætur að líta út um gluggann vitandi það að núna sé vorið komið :) Ég hef verið með eftirfarandi línu á heilanum í allan dag (með smá tilfæringum hehe), en sú lína hljóðar svo: Vorið (ekki Lóan) er komið að kveða burt snjóinn, kveða burt leiðindi það getur hún .... trallalllallalalalalalalalla ! Eftir þennan fagra söng hjá mér datt mér allt í einu eitt ljóð í hug sem að ég lærði í 5. bekk hjá henni Valey í Grunnskóla Siglufjarðar :

Ó blessuð vertu sumarsól,
er sveipar gulli dag og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá
Nú fossar, lækir, unnir , ár
sér una við þitt gyllta hár
Nú fellur heitur haddur þinn
um hvíta jökulkinn

Þetta kvæði hefur reyndar þrjár vísur en ég "kann" bara fyrstu vísuna (ég þurfti nú að fletta þessu upp á netinu bara svona til þess að vera alveg viss á orðalaginu!) ;)

 

Og út frá þessu byrjaði ég að þylja upp enn eitt kvæðið og að þessu sinni þurfti ég ekki að leita það uppi á netinu! ....

 

Nú andar suðrið sæla vindum þýðum.
Á sjónum allar bárur smáa rísa
og flykkjast heim að fögru landi ísa
að fósturjarðar minnna strönd og hlíðum

Ó, heilsið öllum heima rómi blíðum
um hæð og sund í drottins ást og friði.
Kyssið þið bárur, bát a fiskimiði.
Blásið þið vindar hlýtt á kinnum fríðum

Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr, sem fer
með fjaðrabliki háa vegaleysu
í sumardal að kveða kvæðin þín,
heilsaðu einkum ef að fyrir ber
engil með húfu og rauðan skúf í peysu.
Þröstur minn góður, það er stúlkan mín.

Já nú ætti hún Valey að vera stolt! það eru svona ca. 10 ár síðan hún kenndi þetta 8| .. Enda gerðum við ekkert annað en að læra ljóð hjá henni hehe !:) Þjóðarástin og stoltið yfir því að vera Íslendingur blossaði líka upp og mig hlakkar enn meira til að koma heim um páskana ... En jé minn eini hvað ég er eitthvað gamladags!

Ísland ögrum skorið .... nei nú er nóg komið! ;) hahahaha

Yfir í eitthvað allt annað! Helgin var bara fín, ég kikti aðeins út á djammið á laugardaginn með fullt af íslendingum! og sveik stelpurnar í bekknum mínum enn og aftur .. þær hætta örugglega bráðum að bjóða mér með af því að ég lofa alltaf að koma en geri það svo aldrei!

Sunnudagurinn átti bara að vera allsherjar þynnkudagur með leti og öllu tilheyrandi... en það varð ekkert úr því þegar Axel hringdi í mig og sagði við mig að ég ætti að koma í fótbolta með strákunum, hann sko spurði ekki hann sagði mér það bara ;) hehe .. ég gat ekki komið frá þessu þannig að ég skellti mér í þynnkunni út í fótbolta. Ég sá sko ekki eftir þeirri ákvörðun því að veðrið var GEGGJAÐ og ég fékk meira að segja smá lit í framan! hehe .. Veðrið í dag er ennþá betra og mér sýnist allt stefna í bolta klukkan 17:00 :D ég mæti ...

Svo vil ég bara segja ykkur fólkinu heima að það er kominn sumartími hérna í Sverige og þar með 2 klukkustunda munur :)

Mvh
Linda

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 22:27:48 / Linda

Enn ein helgin búin

 

Og það er Mánudagur framundan.... og það mjög svo leiðinlegur mánudagur sem mun innihalda fyrirlestur og hópavinnu allan daginn JIBBÍ eða þannig ! Svoleiðis verður reyndar öll næsta vika og svona til þess að toppa hana ennþá meira þá fæ ég heimapróf á miðvikudaginn .. Gaman hjá Lindu!!

Helgin var bara hin fínasta með óvæntu djammi á föstudaginn. En ég fór í sakleysi mínu í heimsókn til Óla með Ingibjörgu og Ella með þær hugleiðingar að vera bara róleg, ekki fá mér neitt í glas og vakna snemma á laugardagsmorgun og skella mér í ræktina .. sú hugsun var fljót að renna mér úr greipum hehe!! En kallinn hann Óli var svo gestrisinn og bauð okkur uppá hvítvín og ég náttúrulega eins og ég er ákvað að fá mér eitt glas .. svo áður en ég vissi af var hann farinn að bjóða uppá vodka, bjór og eplasnafs.. það var bara hlaðborð i boði Óla og Linda gat ekki haldið aftur af sér ;) ... og það má segja að ástandið hafi verið eftir því hahaha :lol: Við vorum öll á eyrunum um tólf leytið! Skelltum okkur svo í bæinn í klukkutíma, dönsuðum smá, keyptum okkur pizzu og fórum svo aftur heim til Óla. Ég man svo ekki alveg hvað klukkan var þegar maður staulaðist heim .. en þetta var mjög skemmtilegt og mjög svo óvænt djamm :D

Laugardagurinn var EKKI eins og ég var búin að sjá hann fyrir mér ... og Ræktin var EKKI það fyrsta sem að ég hugsaði um þegar ég vaknaði, heldur var það VATN, VATN ég verð að fá VATN :$ I wonder why? Og þegar ég stóð upp hringsnérist allt herbergið ! MASSOR af hausverk hér á þessum bæ .. reyndar var ég nú tilltölulega fljót að ná þessu úr mér og farin í göngutúr með Ingibjörgu og Birki 2 tímum seinna :) Svo um kvöldið buðu Ingibjörg og Axel mér í Lúxus kvöldverð, Nautalundir með kartöflum, salati og íslenskri villibráðasósu blönduð með piparsósu mmmmmm .... þetta var ekkert smá gott, og það er sko ekki á hverjum degi sem að maður étur kjöt hérna! Axel stútaði svo einni rauðvínsflösku einn þar sem að ég Ingibjörg getum bara ekki drukkið rauðvín :D ...svo sátum við þrjú og spjölluðum frameftir kvöldi.

Sunnudagurinn er bara búin að vera eins og flestir sunnudagar .. semsagt eg gerði ekki neitt :haha: Eða jú ég skellti mér í ræktina með Imbu en mér finnst það nú bara alveg ágætis afþrek, enda er ég bara búin að liggja heima eins og skata síðan ;)

Bara 13 dagar í Ísland :haha:

 

Mvh
Linda

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 16:28:29 / Linda

Surf, sól, strönd ..

 

Fakk!

Djöfull sem að mig langar að surfa akkúrat á þessu augnabliki! Ég á að vera að læra en í staðinn er ég að horfa á Blue Crush í sjónvarpinu en það er mynd um þrjár stelpur sem eru svona Surfchicks ;) .. á þessu augnabliki eru þær að kenna óvönum á bretti og ég hugsa strax til Seven Mile Beach í Australia þar sem að við stöllur (ég, Freyja, Stella og Inga) lærðum að surfa :D .. ohhh shit hvað mig langar í sól, sjó, strönd og surfbretti. Þessi 4 daga Surfferð var bara SNILLD, þó að ég verði nú að viðurkenna það að hún var líka ógeðslega erfið ... Ég man eftir fyrsta deginum þegar öldurnar voru HUGES og við réðum ekkert við brettið, enda gátum við bara BodySurfað fyrsta daginn .. og þegar ég heyri orðið Paddle, Paddle, Paddle í sjónvarpinu rifjast upp margar minningar hehe :D Ein stelpa í myndinni minnir mig líka á flottu stelpuna sem að var að kenna okkur og ég man líka eftir því þegar hún tók Freyju í fóstur einn daginn og kenndi henni að standa á brettinu ... góðir tímar góðir tímar. Í þessarri ferð þekkti okkur enginn með nafni heldur vorum við bara kallaðir The Icelandic Girls hehe ;) og svo þegar kennararnir kölluðu á okkur eða vildu hjálpa okkur að ná öldu þá var það bara ICELAND hahahah. Núna í myndinni er verið að sýna allskonar trix og þá er ég bara pufff þetta er ekkert mál .. stór alda, nei þetta er sko ekki stór alda! ;) hahahahah .. nei nei eg segi svona, en að læra að surfa er eitt það erfiðasta sem að ég hef gert en með því skemmtilegasta. Ég verð ég bara VERÐ að fara aftur til Ástralíu ..

En nóg um mína draumóra! Helgin verður bara tekin með ró, bara læra læra læra og EKKERT já ég sagði ekkert fyllerí :) stelpurnar í bekknum eru reyndar að fara allar á djammið og voru að reyna að draga mig með en ég ákvað að reyna að vera skynsöm svona einu sinni og vera heima eina helgi!

Ég ætla halda áfram að horfa á myndinga og láta mig dreyma :)

Mvh
Linda


» 10 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 23:12:30 / Linda

Afmælishelgi

 

Góðan daginn og takk fyrir allar afmæliskveðjurnar :)

Helgin var hreint unaðsleg, Guðný mín kom frá Köben á föstudaginn og var hjá mér alla helgina og svo komu Karin og Lilý frá Örebro á laugardaginn. Ég, Ingibjörg, Óli og Guðný skelltum okkur svo á kaffihús á föstudaginn og fengum okkur bjór en fórum samt snemma heim því að ég var frekar þreytt eftir mjög lítinn svefn nóttina áður, ég var nefnilega í The prófi um morguninn :S .. ég og Guðný hentum okkur beint i rúmið þegar við komim heim, kveiktum á sjónvarpinu og borðuðum íslenskt nammi sem að mamma, Dagný og pabbi sendu mér :D Alltaf gott að fá íslenskt nammi ..

Ég fékk síðan Guðný til að koma með mér og Imbu í ræktina klukkan 11 á laugardagsmorgun, síðan í ríkið að versla inn fyrir kvöldið, eftir það fórum við í ljós, svo heim að borða, sturta, fórum svo á lestarstöðina að ná í Lilý og Karin, búðin, heim og borðuðum smá kökur og ég fékk pakka frá stelpunum :D rosa flotta sænska matreiðslubók frá Lilý og Karin og bol frá Guðný sem að ég var by the way í um kvöldið :) .. svo hjóluðu ég og Guðný aftur í búðina til að kaupa pizzu í kvöldmatinn og ég kom AÐEINS við í skóbúð og auðvitað náði ég að kaupa mér eitt par á 5. mín ! :lol: hehe hvernig fer ég að þessu ! ... svo var það bara heim og fyrsti bjórinn opnaður 8) Við vorum svo hérna 4 stelpur að taka okkur til í 21 fermetra með einum spegli og þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig þetta var .. og herbergið var eins og eftir kjarnorkusprengju! Föt, skór, og snyrtidót út um allt! En þetta tókst allt á endanum ... Við fórum svo á Kurorten klukkan átta því afmælið átti að byrja þá en Julia var búin að leigja partýherbergi fyrir mig. Svo um hálftíma síðar byrjaði fólkið að streyma inn og ég er bara nokkuð ánægð með mætinguna, sérstaklega skemmtilegt að það komu svona margar stelpur úr bekknum mínum :) ... Auðvitað var ferðinni heitið á Bogrens um tólf þar sem að við dönsuðum ALLAN tímann.. og það er bara langt síðan að ég hef skemmt mér svona vel, takk æðislega fyrir mig :)
Sunnudagurinn var reyndar ekki eins góður hehe ..  

Þó að helgin hafi verið frábær í alla staði þá vantaði þó hana Heiðu okkar, en því miður þurfti hún skyndilega að fara heim til Íslands. Heiða mín ég samhryggist þér innilega og ég er svo sannarlega búin að hafa þig og fjölskyldu þína í bænum mínum. Pabbi þinn var frábær maður og eru það forréttindi að hafa fengið að kynnast svona góðum manni, Guð blessi ykkur öll.

Pétur samdi þetta fallega ljóð sem að ég held að allir íslendingar hafi einhverntímann heyrt til:

Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.

Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt, sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.

Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér,
því veit mér feta veginn þinn,
að verðir þú æ Drottinn minn.

Pétur Þórarinsson
1951-2007

Heiða mín eg mun hugsa fallega til þín á föstudaginn.

Mvh
Linda

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 17:26:08 / Linda

Ljós í myrkrinu!

 

Þessa dagana geri ég ekki annað en að læra fyrir félagsfræðipróf sem er á föstudaginn :( ... Stressið er nú þegar í botni en ég á örugglega eftir að fara yfir um áður en að ég kemst í prófið! Allt efnið er á sænsku og eru þetta endalaus hugtök og kallar sem að eg þarf að kunna .. og þegar ég er ekki að læra þá hugsa ég um það hvernig í andskotanum mér eigi að takast þetta!

Fólk er nú samt búið að reyna að kæta mig og segja að þetta sé nú ekkert mál og mér líður þá vel í svona 5 mín þangað til að ég fer að hugsa um allt efnið sem að ég þarf að kunna ... En það er eitt sem að heldur mér gangandi :) Þær Guðný og Heiða elskurnar mínar eru að koma til mín á föstudaginn frá Danmörku og svo er hún Lilý mín að koma frá Örebro á laugardaginn .. en mín á nefnilega æfmæli á Laugardaginn og ætlar að halda smá teiti því til heiðurs :D Ég hlakka bara rosalega mikið til að fá þær allar hingað til Skövde. Ég ætla svo bara að hreiðra um okkur allar hérna í litla herberginu mínu :) ohh .. það verður svo kósý að hafa þær

Þetta blogg átti bara að vera stutt og laggot ... Ég er farin í ræktina og svo beint að læra !

 

Mvh

Linda


» 22 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 23:07:58 / Linda

Ég er með ónýtar lappir!

 

já lappirnar á mér eru í hakki eftir helgina! Ég er ekki með einn plástur, ekki tvo, ekki þrjá heldur fjóra plástra til að hylja ljót hælsæri á báðum, aðra litlutána og sár á ilinni, segir mar þetta svona? (það er reyndar vegna glærbrots, ekki beint tengt skónum!) :$ Ég held að ég verði að gefa flottu skónu mína upp á bátinn ... Ég keypti mér svona fegurðarsamkeppnisskó í Zöru um jólin, stelpur þið eigið að vita hvað ég er að tala um, stór hæll, opnir, svartir og támjóir! en mig hefur alltaf langað í svona skó. Ég er búin að þrjóskast við á síðustu fylleríum og fara í þeim og hugsunin er alltaf sú sama að þeir hljoti nú að fara að víkka og aðlagast fótunum á mér ... en því miður þá er það bara ekki að gerast og ég er alltaf að deyja á leiðinni heim og enda á því að skipta um skó við einhvern. Í þetta skiptið skipti ég við Ingibjörgu og hún er alveg að deyja í löppunum líka 8| þannig að ég verð bara að taka þessu og hætta að ganga í þeim ... þeim verður sárt saknað! EN lítum á björtu hliðarnar, núna neyðist ég til þess að kaupa mér nýja skó og ef það er eitthvað sem ég elska þá er það að kaupa mér nýja skó :D ...

Annars er það að frétta af mér að eg hef tekið ákvörðun um það að klára árið hérna í Svíþjóð og flytja til Íslands í mai en síðasti skóladagurinn er 22. mai :) Ég hef verið í smá viðræðum við þá í HÍ um þann möguleika að fá eitthvað af náminu mínu hérna metið inn í sálfræði eða félagssfræði og það er möguleiki á því að fá margt af því sem að ég hef tekið hérna metið inn í annaðhvort námið! Reyndar þyrfti ég að klára allt 1. árið í sálfræði og fá þá eitthvað metið á 2. eða 3. ári, sem að er líka alveg fínt :) Ég er mjög fegin því að vera LOKSINS búin að ákveða hvað ég ætla að gera en ég er farin að halda því fram að ég sé haldin ákvörðunarfobíu! Ég get hreinlega ekki ákveðið hlutina og þarf helst alltaf að fá álit frá einhverjum öðrum um það hvað í andskotanum eg eigi að gera .. þetta getur verið mjög pirrandi! Næsta ákvörðun verðu svo hvað ég eigi að gera í sumar?? en ég held að ég leggji ekki í hana alveg strax... ég hef annað að hugsa um eins og prófið sem að ég er að fara í 2. mars :S Ég get ekki lýst því hvað ég er stressuð og það er ein og hálf vika í það ... ég verð farin yfir um af stressi loksins þegar dagurinn rennur upp !

Herru ég skellt mér svo á ruv.is áðan og hlustaði á lögin sem að lentu í 1., 2. og 3 sæti í undankeppni Eurovison og ég dýrka að við séum bara að fara að senda Eirík Hauksson fyrir íslands hönd, gæinn var bara helvíti flottur með síða hárið og í leddarabuxunum hahahaha .. mér finnst þetta pínu fyndið ! og hvað var með gaurinn sem að lenti í 3. sæti?? var það eitthvað grín eða ... alveg glataður!

En þetta er nóg í bili, ég ætla að halda áfram að reyna að læra!

Mvh
Linda

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 18:37:47 / Linda

ómerkileg færsla ...

Hej Hej

Alltaf þegar ég kveikji á sjónvarpinu er verið að auglýsa einhver krem til varnar sveppum, bæði á fótum og annars staðar (þið getið ykkur til annarra svæða ;) ) ! það er alveg ótrúlegt ... ef það eru ekki sveppir þá er það töflur við hálsbólgu, verkjum, frunsu eða eitthvað sem viðkemur heilsu! Eru Svíar svona miklir aumingar?? bara svona smá pæling .. og einmitt í þessum skrifuðum orðum kemur sveppaauglýsing sem er by the way "uppáhalds" auglýsingin hans Óla ;) haha

Líf mit hefur breyst núna á síðustu 2 vikum þar sem að ég hef loksins getað horft á sjónvarp :D Gulli var svo góður að lána mér sjónvarpið sitt þangað til að hann tæki allt dótið sitt úr íbúðinni sinni en hann er að flytja til Malmö kallinn .. núna get ég bara legið í rólegheitum heima og tittat på TV, en ég hef saknað þess rosalega að hafa ekki sjónvarp! Og pælið í því ég er búin að vera hérna næstum í 7 mánuði án sjónvarps 8| Sjónvarp ... sjónvarp ... sjónvarp hehe

Helgin var svo tekin með stóískri ró, bara lærdómur, ræktin og barnapössun ... Ég verð þó að viðurkenna það að mig langaði óhemjumikið a djammið í gær en ég var víst búin að lofa því að drekka ekki þessa helgi .. og ég stóð við það :) Geri aðrir betur ....

Og svona til þess að imponera ykkur enn meira og sýna fram á það að ég átti mér ekki lif þessa helgi var að í gærkvöldi þegar ég kom heim frá Ingibjörgu og Axel kveikti ég á sjónvarpinu og horfði á Discovery channel og þar var verið að sýna þátt um það hvernig best væri hægt að komast af í Amazon skóginum ... og ég horfði á þáttinn til enda :$ haha .. ef þið eruð á leiðnni í Amazon skóginn þá er um að gera að tala við mig fyrst þvi að ég get frætt ykkur um ýmsa hluti ;)

Jæja nóg komið af þessu bulli, ég ætla að fara að hitta hana Ulricu á msn og klára verkefni fyrir seminarum ... Tråkigt!

Mvh
Linda

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9